Krummafótur

Hlaðvarp þar sem Eyvindur Karlsson og Kristján Atli tækla litlu málin. Fyrir forvitið, fróðleiksþyrst og fjörugt fólk sem vill smá heimsku með heimspekinni sinni.

Episodes

Jul 2, 2026

1hr 4 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýlega sýningu á Rocky Horror í Þjóðleikhúsinu. Þá ræða þeir um nýlegan dóm sem féll og kveður á um að íslensk hlaðvörp séu ekki fjölmiðlaskyld áður en Kristján segir frá nýjustu vendingum á HM í knattspyrnu. Þá ræða þeir uppþot í Belfast og forfrískvíða.
 

Jun 18, 2026

1hr 7 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýlega ferð sína í Bíó Paradís til að sjá leikritið All My Sons. Þá ræða þeir um nýlegar, ódýrar hryllingsmyndir sem eru að rústa rándýrum stórmyndum í bíó vestan hafs. Þá velta þeir fyrir sér nýjustu vendingum og hryllingssögum í gervigreindarmálum áður en þeir ræða um mikilvægi þess að blekkja sjálfan sig.
 

Jun 10, 2026

1hr 24 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um búslóðaflutninga og mínímalisma á heimilinu áður en Kristján spyr hvort það sé vitlaust að Íslendingar fari í utanlandsferðir á sumrin. Kristján útskýrir overthinkers anonymous áður en Eyvindur færir rök fyrir því af hverju fólk eigi að njóta vafans.
 

May 27, 2026

1hr 9 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kveðja söngvarann Dennis Locorriere áður en Eyvindur segir frá nýafstaðinni EVE Fanfest í Hörpu. Þá velta þeir fyrir sér hver tilgangur lífsins er áður en Kristján útskýrir að þetta er ekki svona alvarlegt.
 

May 20, 2026

1hr 14 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skella sér í bíltúr og ræða þreytu sína gagnvart sjónvarpsþáttum sem teygja lopann. Kristján ræðir um nafnahefðir aftan á íslenskum íþróttatreyjum og hvernig hlustunarvenjur hafa breyst áður en Eyvindur agnúast út í steggjanir/gæsanir og skýrir hvers vegna hjólreiðar eru eins og golf.

May 13, 2026

1hr 41 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna vali á áhugaleiksýningu ársins á Íslandi. Eyvindur segir frá ströngu æfingaferli sínu í hjólreiðum. Loks velja þeir bestu lög tónlistarmannanna Beck og Tom Waits. 
 

May 6, 2026

1hr 12 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skella sér í bíltúr og ræða um rúntmenningu Íslands. Kristján fær viðbrögð Eyvindar við skemmtilegum samsæriskenningum áður en þeir ræða um tímamótasamning Brandon Sanderson við Apple TV um framleiðslu á bókum sínum.
 

Apr 29, 2026

1hr 7 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýjustu vendingar í heimi gervigreindar. Eyvindur segir Kristjáni frá dvöl sinni á Húsavík áður en Kristján kynnir Eyvind fyrir ýmis konar rottukóngum.
 

Dec 8, 2025

1hr 34 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um mikilvægi jóla- og áramótahefða í sínu lífi. Þá velta þeir fyrir sér lit ársins og litum í fatavali, notkun fánastanga á Íslandi, bestu tökulögin, pólitík á stórviðburðum og fleira áður en þeir gera upp og velja besta hljómsveitarnafn Krummafótar.
 

Dec 2, 2025

1hr 31 min

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli eru komnir í jólaskap og ræða hvenær rétt sé að skreyta og byrja að fagna jólunum. Eyvindur spyr Kristján hvort Die Hard sé jólamynd áður en þeir rífast um meint siðleysi Leðurblökumannsins Bruce Wayne. Kristján veltir fyrir sér vaxandi vinsældum áhorfs á sjónvarpsáhorf. Þá segir Eyvindur frá heimildamynd um umdeilda hundaræktun á Spáni og í kjölfarið ræða þeir almennt um dýraníð. Rétt er að vara við lýsingum í þættinum. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.
 
Hlustið á sögu Kristjáns Atla, Hver ertu?
 
Horfið á heimildamyndina Yo Galgo á YouTube.

© 2025 Krummafótur

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125