Episodes
Monday Aug 04, 2025
Monday Aug 04, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um veðrið og Verslunarmannahelgina, svefnpoka og útihátíðir, áður en Eyvindur býsnast yfir ströngum lögum um dýrahald á Íslandi. Kristján veltir fyrir sér fasískum umræðuhöftum í garð Ísrael og loks ræða þeir um jarðarfarir og bestu jarðarfaralögin fyrir sig. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Jul 28, 2025
Monday Jul 28, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um ferð þess fyrrnefnda til Lundúna og hvernig hún tengdist hundahaldi þeirra beggja. Þá veltir Kristján fyrir sér hvort erfið list sé að einhverju leyti betri en önnur list, á meðan Eyvindur segir frá nýjum uppgötvunum í lyfjum til vöðvauppbygginga. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Jun 30, 2025
Monday Jun 30, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um hundahald og samskipti mannfólks við ýmis dýr áður en þeir velta sögu Charles Manson fyrir sér og Kristján spyr hvenær orð bera ábyrgð. Eyvindur segir frá hörmulegu spunaspili og frábærum dómi um það. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Hér er hægt að lesa hreint út sagt frábæran dóm um lestarslysið sem er F.A.T.A.L. spunaspilið.
Monday Jun 16, 2025
Monday Jun 16, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða meðal annars um afmælisskrúðgöngu Trump, normalíseringu fasisma á Íslandi, lögleiðingu hnefaleika og svikaraheilkenni í stútfullum þætti. Loks velja þeir uppáhalds furðuheimana sína. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Við minnum á vefsíðu þáttarins á slóðinni https://krummafotur.fm
Monday Jun 09, 2025
Monday Jun 09, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýlegan lestur og áhorf. Eyvindur mærir The Lies of Locke Lamora e. Scott Lynch, Kristján hleður sjónvarpsþættina Andor lofi og lýsir Star Wars-heiminn sprelllifandi. Þá ræða þeir um jaðarsport og lyf gegn fíknisjúkdómum áður en þeir velta nýlegum skilnaði Bandaríkjaforseta og ríkasta manns heimsins fyrir sér, sem og áframhaldandi uppgangi fasismans vestan hafs. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Jun 02, 2025
Monday Jun 02, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli hylla nýafstaðinn maímánuð áður en Eyvindur segir frá þátttöku sinni í Melodica festival. Þeir ræða um sýningu Eyvindar á stóra sviði Þjóðleikhússins kvöldið áður og velta fyrir sér hversu vanmetin Pamela Anderson er. Loks rifja þeir upp útgáfuferla sína. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday May 19, 2025
Monday May 19, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðna Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og aðra nýlega tónlistarhlustun. Eyvindur spyr hvort það geti skemmt fyrir upplifun ef einhver hefur lofað efni um of. Svo spyr hann Kristján hvernig honum líði með spunaspil nú eftir rúmlega hálfs árs spilamennsku. Loks velja þeir uppáhalds bækur sínar eftir Stephen King. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday May 12, 2025
Monday May 12, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um bongóblíðu og tiltektardaga. Eyvindur veltir fyrir sér hrifningu fólks á vampírusögum og þeir ræða ýmsar vampírusögur. Þá velta þeir fyrir sér muninum á fantasíu og vísindaskáldskap (sci-fi) áður en Kristján segir Eyvindi frá plötunni Six með Mansun sem varð næstum að skáldsögu eftir Kristján Atla. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Tuesday May 06, 2025
Tuesday May 06, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningaráhrif Bandaríkjanna og hermennsku stórþjóðarinnar. Kristján spyr Eyvind um meint ágæti plötunnar Mule Variations með Tom Waits og loks deilir Eyvindur ferðasögu sinni frá nýlegri för til Mexíkó og Kanada. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Apr 28, 2025
Monday Apr 28, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna sumrinu með því að ræða bestu hliðar sumarsins og mikilvægi félagsskapar. Eyvindur veltir fyrir sér framtíð tæknirisa Bandaríkjanna á tímum Trump og Kristján reynir að færa rök gegn grínristunum. Loks velja þeir uppáhalds lögin sín með hljómsveitinni R.E.M. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.







